Staðsetning og aðgengi

Gljúfrasteinn er á leiðinni til Þingvalla í Mosfellsdal í Mosfellsbæ. Um 20 mínútur tekur að aka frá Reykjavík að Gljúfrasteini.

Með strætó

Hægt er að taka strætisvagn að Laxnesi í Mosfellsdal og ganga þaðan að Gljúfrasteini. Athugið að ekið er með fólk í leigubíl frá stoppistöðinni við Háholt í Mosfellsbæ upp í Mosfellsdal. Fólk þarf að hringja í s. 540 2740 þrjátíu mínútum fyrir áætlaðan brottfarartíma samkvæmt tímatöflu strætó. Bent er á vefinn www.straeto.is fyrir frekari upplýsingar.  

Aðgengismál

Hjólastólaaðgengi er í móttökuhúsinu og á fyrstu hæð hússins. Ekki er hjólastólaaðgengi upp á aðra hæð. Þess ber að geta að Gljúfrasteinn var byggður árið 1945 og því eru þröskuldar í húsinu. Hægt er að aka alveg heim í hlaðið.

Hér má sjá þrívíddarmyndir af Gljúfrasteini, bæði fyrstu og annarri hæð.

Bílastæði

Stæði fyrir gesti Gljúfrasteins eru staðsett við veginn fyrir neðan húsið. Þegar mikið er um að vera á safninu eru þau stæði þó yfirleitt fljót að fyllast. Þá er hægt að leggja í stæði sem eru hinum megin við ána Köldukvísl, framan við Jónstótt.

Til að komast að stæðunum við Jónstótt verður að beygja upp afleggjarann til hægri, sem merktur er Helgadal, áður en komið er að Gljúfrasteini ef keyrt er frá Reykjavík.

Ekið er upp Jónstóttarveg.


 

 

image description